Húsnæðislán
Endurfjármagna
Endurfjármögnun er hugtak sem notað er yfir það þegar ný lán eru tekin og nýtt til uppgreiðslu á fyrirliggjandi lánum.
9. apríl 2026

Það eru nokkrar ástæður fyrir því að eigendur endurfjármagni lán sín, til dæmis er það gert til að breyta skilmálum lána, lánsfjárhæð eða mánaðargreiðslu. Með þeim hætti getur eigandi fengið betri vaxtakjör ef gömul vaxtakjör eru verri en kjör sem bjóðast á markaðnum, tekið eigið fé út úr íbúðinni sinni eða breytt mánaðargreiðslu lánsins.
Fastir vextir
Þegar lán eru tekin býðst eigendum að festa vexti. Flestar lánastofnanir bjóða upp á fasta vexti í 3 eða 5 ár en einnig er stundum hægt að festa vexti út lánstíman. Þetta þýðir einfaldlega að vaxtakjör lánana munu ekki breytast fyrr en að fastvaxtatímabili er lokið nema lánin séu endurfjármögnuð innan fastvaxtatímabils. Til að endurfjármagna lán á fastvaxtatímabili þurfa eigendur í sumum tilfellum að greiða uppgreiðslugjald til lánastofnana.
Breytilegir vextir
Breytilegir vextir eru vaxtakjör sem breytast þegar að lánastofnun uppfærir vaxtatöflu sína. Ef lánið þitt er á breytilegum vöxtum geta vaxtakjörin breyst fyrirvaralaust þegar lánastofnun ákveður það. hjá einhverjum lánastofnunum eru breytilegir vextir samtengdir stýrivöxtum og því uppfærast vaxtakjör þegar stýrivöxtum er breytt. Lán með breytilegum vöxtum bera í flestum tilvikum ekki uppgreiðslugjöld og því kostar ekkert að endurfjármagna þau að undanskyldu greiðslumati og mögulegum lántökukostnaði.
Uppgreiðslugjald.
Uppgreiðslugjöld eru gjöld sem falla til ef að lán á föstum vöxtum eru endurfjármögnuð eða stórar aukagreiðslur greiddar inn á þau.
Lántökugjöld
Lántökugjöld eru gjöld sem eigandi greiðir fyrir stofnun nýrra lána. Þegar lán eru endurfjármögnuð innan sömu lánastofnunar og upphæð lánsins er ekki breytt eru lántökugjöld oft ódýrari en þegar skipt er um lánastofnun. Lántökugjöld eru oft á bilinu 50-70 þúsund krónur og svo þurfa eigendur einnig að greiða fyrir greiðslumat. Aukakostnaður getur einnig fallið til ef stofnuð eru fleirri en eitt lán.
Villt þú vita meira?
Endurfjármögnun er oft fýsilegur kostur til að breyta lánum þegar betri kjör standa til boða. Það er þó margt sem huga þarf að við endurfjármögnun og oft getur reynst erfit að ákvarða hvort ódýrara sé að halda lánum eins eða breyta þeim. Einnig getur oft vafist fyrir fólki hvernig lán á að taka í stað þeirra gömlu svo heildarstaðan sé betri en hún var fyrir endurfjármögnun. Hægt er að bóka tíma hjá okkur til að læra meira um ferlið og helstu hugtök varðandi endurfjármögnun. Við berum núverandi lán saman við aðra möguleika og sýnum þér hvað þú sparar mikið. Ef þú ert ekki viss hvort endurfjármögnun henti getur þú sent okkur upplýsingar um lánið þitt og við látum þig vita hvort það borgi sig að endurfjármagna.
