Einföld og óháð lánaráðgjöf á Íslandi

Við berum saman.
Þú velur.

Óháð lánaráðgjöf á Íslandi. Við hjálpum þér að bera saman og finna lán sem hentar þínum þörfum.

Bóka tíma

Pantaðu fund með ráðgjafa

25.900 kr. fyrir ráðgjafartíma

Næsta skref

Ert þú með bestu vaxtakjörin?

Bóka tíma

Á Íslandi bjóða fjölmargar stofnanir upp á lánveitingar en erfit getur reynst að bera saman lánskjör þeirra. Í mörgun tilfellum er hægt að endurfjármagna lánin og spara umtalsverðar fjárhæðir, bæði á hverjum mánuði og til lengri tíma litið. Við hjálpum þér fá bestu lánskjörin sem bjóðast hverju sinni.

  • Allt tengt lánum

    Við aðstoðum þig við allt sem við kemur lánum.

  • Óháð ráðgjöf

    Við vinnum eingöngu fyrir þig - engin tengsl við aðra lánveitendur.

  • Einföld nálgun

    Við leggjum metnað í að útskýra hlutina á einfaldan hátt.

  • Persónuleg aðstoð

    Ráðgjafar okkar hlusta á þig og svara spurningum á skýran hátt.

Hvernig virkar þetta

Einföld leið að bestu lánakjörunum

Fylltu út spurningalista

Þú svarar einföldum spurningalista sem gefur okkur innsýn í þína stöðu.

Bókaðu fund

Þú velur tíma sem hentar þér.

Ráðgjöf

Þú kemur á fund, á skrifstofu okkar eða á netinu og við förum saman yfir þína stöðu.

Þú velur

Þú færð upplýsingar um þína stöðu og velur það sem hentar þér best.

Þeir Óskar og Davíð eru algjörir snillingar. Þeir veittu okkur faglega ráðgjöf þrátt fyrir mikla óvissu varðandi lánaveitingar og lántöku vegna dómsmála sem voru í gangi á þeim tíma. Sem fyrstu kaupendur komum við algjörlega köld að borðinu og vissum í raun mjög lítið. Þeim tókst að dýpka skilning okkar á því sem skipti mestu máli og tóku glaðir við öllum þeim spurningum sem brunnu á vörum okkar. Þjónustan var á mjög persónulegum nótum og ráðgjöfin hjálpaði okkur að taka upplýsta ákvörðun um lántöku.
IT
Ingibjörg ThoroddsenFyrsti kaupandi
Við getum ekki mælt nógu mikið með Lánaráðgjöf fyrir alla sem vilja skilja húsnæðislánið sitt betur! Við fengum ótrúlega góða aðstoð við að fara yfir okkar mál og það sem stóð upp úr var hvað allt var útskýrt á einfaldan, skýran og aðgengilegan hátt. Í fyrsta skipti fannst okkur við virkilega skilja lánið okkar betur og hvaða áhrif mismunandi valkostir hafa. Með þeirra hjálp fundum við mun hagstæðari leið fyrir okkur og stefnum núna í endurfjármögnun.
SA
Sigurrós Arey ÁrnýjardóttirEndurfjármögnun
Ég er mjög ánægður með þjónustuna. Þessir taka alla óvissu úr ferlinu og sjá um að finna bestu lánakjör sem eru í boði hverju sinni. Það var mikill léttir að þurfa ekki að eyða sjálfur tíma í að bera saman alla möguleika, heldur geta treyst sérfræðingum til að sjá um málið og finna bestu lausnirnar sem henta mér. Mæli hiklaust með þjónustunni fyrir alla sem vilja einfaldari og öruggari leið í gegnum lánamál.
Eiður Ófeigur HalldórssonEndurfjármögnun

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Hvað er lánaráðgjöf?

Lánaráðgjöf er óháð þjónusta sem aðstoðar þig við allt sem snýr að lánum. Við förum meðal annars yfir með þér hvaða lánamöguleikar og lánveitendur standa þér til boða, hvaða lán henta best miðað við þínar aðstæður og allar helstu upplýsingar sem þú getur nýtt þér til að taka upplýsta ákvörðun um þín lán í framtíðinni. Lánaráðgjöf veitir ekki ráðgjöf í skilningi laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda.

Hvað þýðir frítt mat á húsnæðisláni?

Þegar þú svarar spurningalista í gegnum "fá frítt mat" berum við þitt lán saman við möguleg vaxtakjör allra lánastofnana. Í kjölfarið látum við þig vita hvort lánið sé á góðum vaxtakjörum eða hvort hægt sé að gera betur.

Hvað kostar lánaráðgjöf?

Almennt gjald fyrir einstaklinga og fjölskyldur er 25.900 kr. fyrir fundinn. Þá fá fyrstu kaupendur 20% afslátt af ráðgjöf. Það kostar hins vegar ekkert að fá frítt mat á núverandi húsnæðisláni.

Hvaða lán geti þið hjálpað mér með?

Við aðstoðum þig við allt sem við kemur lánum. Hvort sem það er húsnæðislán, bílalán, námslán, yfirdráttur eða önnur lán þá getur þú leitað til okkar.

Er þjónustan óháð lánveitendum?

Já. Lánaráðgjöf er ekki tengd neinum lánveitanda. Við berum saman vörur frá öllum helstu bönkum og fjármálastofnunum á Íslandi og tökum ekki þóknun frá þeim — þannig tryggum við hlutlægar ráðleggingar.

Hefur þú fleiri spurningar?

Hafa samband