Lögfræðilegt
Persónuverndarstefna
Sett 30. mars 2026
Upphafstexti
Lánaráðgjöf tekur þær skyldur sem fylgja persónuvernd, öryggi og meðhöndlun persónuupplýsinga alvarlega. Persónuverndarstefna félagsins er sett með vísan í lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Við alla vinnslu persónuupplýsinga hefur félagið að leiðarljósi að tryggja áreiðanleika og öryggi persónuupplýsinga.
Varðandi lánaráðgjöf
Athugið að Lánaráðgjöf veitir ekki lánaráðgjöf í skilningi laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda. Ákvörðun í kjölfar ráðgjafar er á ábyrgð viðskiptavinar.
Varðandi fjárfestingarráðgjöf
Lánaráðgjöf veitir ekki ráðgjöf samkvæmt hugtakinu „fjárfestingarráðgjöf“ eins og það er skilgreint í 4. tl. 1. mgr. 4. gr. MiFID II tilskipunarinnar.
Hvað eru persónuupplýsingar?
Í persónuverndarlögunum er að finna skilgreiningu á hugtakinu persónuupplýsingar sem hljóðar svo: Upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling („skráðan einstakling“); einstaklingur telst persónugreinanlegur ef unnt er að persónugreina hann, beint eða óbeint, svo sem með tilvísun í auðkenni eins og nafn, kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða einn eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti.
Hvað er vinnsla persónuupplýsinga?
Vinnsla persónuupplýsinga vísar til aðgerðar eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar eru unnar.
Hvaða persónuupplýsingum er safnað?
Upplýsingar sem félagið fær sendar í samskiptum við viðskiptavini geta meðal annars verið:
- Nafn
- Netfang
- Símanúmer
- Kennitala
- Heimilisfang, póstnúmer, staður
- Upplýsingar um lán, skuldir og skuldabréf
- Upplýsingar um tekjur, gjöld, eignir
Hvaðan koma persónuupplýsingarnar?
Félagið safnar persónuupplýsingum sem varða viðskiptavin ef hann velur að veita þær skriflega hvort sem er í gegnum vefsíðu, tölvupóst eða annan vettvang.
Tilgangur þess að safna persónuupplýsingum
- Til að veita viðskiptavini þá þjónustu sem hann hefur óskað eftir.
- Til að svara fyrirspurnum og vinna úr beiðnum sem hann sendir til okkar.
Varðveisla persónuupplýsinga
Persónuupplýsingar um viðskiptavini eru varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er til að uppfylla tilganginn með söfnun þeirra. Almennt eru gögn ekki vistuð lengur en í 10 ár frá því að máli er lokað, nema lög áskilji annað eða ef málefnaleg ástæða er fyrir áframhaldandi varðveislu gagnanna.
Bókhaldsgögn í tengslum við þjónustu Lánaráðgjafar til viðskiptavina eru varðveitt í samræmi við lög um bókhald.
Félagið varðveitir allar persónuupplýsingar á öruggan hátt og í samræmi við lög.
Miðlun persónuupplýsinga
Lánaráðgjöf miðlar ekki persónuupplýsingum um viðskiptavini til þriðja aðila.
Réttindi skráðra einstaklinga
Viðskiptavinir eiga rétt á að fá upplýsingar um og aðgang að persónuupplýsingum um þá sjálfa sem Lánaráðgjöf hefur undir höndum. Þeir eiga rétt á að afturkalla samþykki sitt fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem byggð er á samþykki hvenær sem er. Þeir eiga einnig rétt á að óska eftir að láta leiðrétta, eyða eða takmarka vinnslu persónuupplýsinga um sig eða andmæla slíkri vinnslu.
Persónuvernd barna
Lánaráðgjöf skráir engar persónuupplýsingar um börn yngri en 18 ára.
Vafrakökur
Vafrakökur (cookies) eru upplýsingaforrit sem vafraforrit vista á notendatölvum og snjalltækjum. Þær hafa ákveðið gildistímabil og renna út að því loknu. Vafrakökur geta geymt upplýsingar um tölfræði og stillingar notanda svo dæmi sé tekið, en geyma ekki persónuupplýsingar eins og nafn, kennitölu, netfang eða símanúmer. Dæmi um vafrakökur sem við notum:
- Nauðsynlegar vafrakökur. Notaðar í þeim tilgangi að tryggja að vefurinn starfi eðlilega.
- Tölfræðikökur. Notaðar til þess að greina hvernig vefurinn er notaður. Þessar upplýsingar eru nafnlausar.
Í samræmi við gildandi lög óskum við eftir leyfi frá þér til að nota vafrakökur. Við gerum þér einnig auðvelt að skipta um skoðun hvenær sem er, með aðgengi að friðhelgisstillingum. Þar getur þú slökkt á þeim vafrakökum sem eru ekki nauðsynlegar til að vefurinn virki eðlilega. Þú getur líka slökkt á öllum kökum með því að breyta vafrastillingum þínum. Við bendum á að ef þú slekkur á öllum vafrakökum getur það komið niður á virkni vefsins.
Gagnasöfnun og greining
Lánaráðgjöf notar gögn frá vefgreiningarþjónustu Google Analytics til að þróa og lagfæra vefsíðu fyrirtækisins og gera notendum auðveldara að finna upplýsingar. Google safnar upplýsingum nafnlaust og upplýsingar um notkun á vefsíðunni eru ekki persónugreinanlegar. Google kann að senda umræddar upplýsingar til þriðja aðila þegar lög krefjast þess, eða þegar þriðji aðili vinnur úr upplýsingunum fyrir hönd Google. Google tengir ekki IP-tölu viðkomandi notanda við önnur gögn sem Google hefur í fórum sínum.
Meðferð tölvupósts
Allar upplýsingar sem fram koma í tölvupóstum og viðhengjum frá Lánaráðgjöf eru trúnaðarmál og eingöngu ætlaðar þeim sem pósturinn er stílaður á, eða fulltrúa hans. Hafi tölvupósturinn borist röngum aðila er móttakanda hans, með vísan til 9. mgr. 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti, skylt að gæta fyllsta trúnaðar og tilkynna sendanda samtímis að upplýsingarnar hafi ranglega borist sér. Í þeim tilvikum skal móttakandi eyða póstinum ásamt viðhengjum. Misnotkun á efni upplýsinganna eða fjölföldun er óheimil og getur verið refsiverð samkvæmt lögum.
Breytingar á persónuverndarstefnu
Lánaráðgjöf getur breytt persónuverndarstefnu þessari eftir því sem þurfa þykir innan marka gildandi laga og reglna. Nýjasta útgáfa persónuverndarstefnunnar er ávallt birt á vefsíðu Lánaráðgjafar hverju sinni.
Hafa samband
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi persónuverndarstefnu þessa, þá vinsamlegast hafðu samband í gegnum netfangið lanaradgjof@lanaradgjof.is.
Persónuverndarstefna þessi var sett 30. mars 2026.
