Um okkur

Við erum með þér í liði

Lánaráðgjöf er óháð ráðgjafarþjónusta sem aðstoðar einstaklinga og fjölskyldur við allt sem við kemur lánum. Við vinnum með fólki sem er að taka sín fyrstu skref á fasteignamarkaði, endurfjármagna lán, kaupa fasteign eða vilja einfaldlega fá betri yfirsýn og skilning á sínum lánamálum.

Við veitum persónulega ráðgjöf þar sem markmiðið er að gera flókin lánamál einföld og skiljanleg. Með því að greina stöðu hvers viðskiptavinar vandlega hjálpum við að finna hagkvæma lausn hverju sinni. Rétt ákvörðunartaka getur skipt sköpum þegar horft er fram veginn.

Allt tengt lánum

Við aðstoðum þig við allt sem við kemur lánum.

Óháð ráðgjöf

Við vinnum eingöngu fyrir þig — engin tengsl við aðra lánveitendur.

Einföld nálgun

Við leggjum metnað í að útskýra hlutina á einfaldan hátt.

Persónuleg aðstoð

Þú ræðir við ráðgjafa sem hlustar á þig og svarar spurningum á skýran hátt.

Lánaráðgjöf · Kennitala 540224-0210

Bjarkarholt 2, 270 Mosfellsbær

Ljósmynd af Davíð Arnar Jónsson

Davíð Arnar Jónsson

Ráðgjafi

Davíð er ráðgjafi og annar stofnenda Lánaráðgjafar. Áður en hann stofnaði fyrirtækið starfaði hann í fjármálateymi Rekstrarumsjónar við þjónustu húsfélaga. Davíð hefur lokið BS.c gráðu frá Háskóla íslands í viðskiptafræði en auk þess hefur hann víðtæka starfsreynslu úr ólíkum greinum atvinnulífsins sem nýtist honum vel við störf sín í dag.

Ljósmynd af Óskar Már Óskarsson

Óskar Már Óskarsson

Ráðgjafi

Óskar er ráðgjafi og annar stofnenda Lánaráðgjafar. Áður en hann stofnaði fyrirtækið starfaði hann hjá Fossum fjárfestingarbanka á sviði markaðsviðskipta. Auk þess hefur hann sinnt fjölbreyttum störfum í gegnum tíðina sem nýtast vel á mörgum sviðum. Óskar er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.