Húsnæðislán

Kaupa fyrstu eign

Að kaupa fyrstu fasteignina er stór ákvörðun og það er alveg eðlilegt að vera með alls konar spurningar. Hvort sem þú ert rétt að byrja að skoða málin eða komin(n) langt í ferlinu, upplifa flestir óvissu á einhverjum tímapunkti.

9. apríl 2026

Drauma eignin fundin

Það fyrsta sem tilvonandi eigendur þurfa að gera er að finna fasteign sem hentar þeirra skilyrðum. Til að hægt sé að kaupa eignina þurfa eigendur að eiga að minnsta kosti 10% af fasteignamati þar sem bankarnir lána að hámarki upp að 90% af kaupverði fyrstu eignar. Eigendur geta því leitað eftir svæðum sem þeir kjósa að búa á og til að athuga hvort eignin komi til greina þarf eigið fé þeirra að passa undir þessi skilyrði:

Eigiðfé =0,1*Kaupverð


Skoðun á fasteign

Þegar eigendur eru búnir að finna eign sem fellur undir skilyrði sín er næsta mál á dagskrá að skoða hana nánar. Við skoðun á fasteign eru mörg atriði sem vert er að hafa í huga en við höfum tekið saman lista yfir helstu atriðin sem gott er að hafa meðferðis. Listinn er aðgengilegur hér hægra megin á síðunni. Ef íbúðin fellur enþá undir skilyrði kaupenda getur kaupandi lagt fram tilboð í eignina.  


Val á lánastofnun

Þegar drauma eignin hefur verið fundin þurfa tilvonandi eigendur að velja sér lánveitanda. Lánveitendur á Íslenskum markaði eru margir og þeir eru allir með sín skilyrði og verð sem erfit getur reynst að bera saman. Íslandsbanki og Landsbankinn bjóða upp á 90% lán fyrir fyrstu kaupendur en Arion banki einungis 85%. Lánastofnanir eru einnig með ólíkar vaxtatöflur og verðskrár sem breytast reglulega. Að velja sér rétta lánastofnun getur verið flókið ferli en skiptir gríðalega miklu máli til framtíðar. Hver og ein kaup eru misjöfn og þar að leiðandi getur ein lánastofnun hentað sumum en alls ekki öðrum. Við höfum tekið saman lista yfir lánastofnanir á Íslandi og þeirra helstu lánakröfur, listan má finna hér hægra megin á þessari síðu. Við hvetjum kaupendur til að kynna sér lánakjörin vel en hægt er að bóka tíma í ráðgjöf hér á síðunni til að kynna sér þessi mál betur.


Greiðslumat

Þegar lánastofnun hefur verið valin þurfa kaupendur að ganga í gegnum greiðslumat hjá þeirri lánastofnun. Greiðslumat er mat lánastofnunar á hversu háa upphæð kaupendur geta greitt á mánuði í afborgun lána og vaxtakostnað. Niðurstaða greiðslumatsins getur að hámarki numið 40% af ráðstöfunartekjum einstaklinga samkvæmt viðmiði seðlabankanns. Matið byggir á Tekjum, gjöldum, eignum og skuldum kaupenda og það kostar á bilinu 7-20 þúsund krónur.


Val á Lánafyrirkomulagi.

Næsta mál er að velja lánafyrirkomulag hjá viðkomandi lánastofnun. Á Íslandi er hægt að taka fjórar mismunandi tegundir af lánum, þ.e.a.s Verðtryggt eða Óverðtryggt og með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum. Einnig er hægt að taka fleiri lán en eitt sem leiðir til lánablöndu af einhverjum af ofangreindum möguleikum. Tegundir lána eru mjög ólíkar, þjóna ólíkum tilgangi og greiðslumatið segir að vissu leiti til um hvernig lán stendur til boða.


Viltu vita meira?

Hægt er að bóka tíma í ráðgjöf hjá okkur og við förum yfir þessi atriði með þér á skýrari hátt.

Við stillum upp dæmi fyrir kaupendur þar sem þeir sjá hvaða áhrif þessi atriði hafa á niðurstöðu kaupanna.

Kaupendur fá einnig að sjá þróun lánana næstu árin.