Kaup á húsnæði
Skoðun fasteigna
Hér má sjá helstu atriði sem æskilegt er að skoða áður en tilboð er gert í fasteign.
17. júní 2026
Við leit að fasteign til kaupa þarf að hafa ýmis atriði í huga. Verð eignarinnar þarf að vera innan fjárhagsramma kaupanda þannig að eigið fé dugi fyrir útborgun og greiðslumat standist. Þegar eign sem uppfyllir þessi skilyrði hefur verið fundin er næsta skref að mæla sér mót við fasteignasala og skoða eignina vel.
Samkvæmt lögum um fasteignakaup er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda og því er mikilvægt að vanda til verka þegar eignin er skoðuð. Hér að neðan höfum við tekið saman helstu atriði sem æskilegt er að skoða áður en tilboð er gert í eignina.
Atriði sem þarfnast lagfæringa geta í sumum tilvikum falið í sér tækifæri fyrir laghenta kaupendur, sérstaklega ef kostnaður við úrbætur er hóflegur. Listinn er ekki tæmandi heldur ætlaður til viðmiðunar og oft getur verið skynsamlegt að fá fagaðila til að framkvæma nánari ástandsskoðun áður en ákvörðun um kaup er tekin.
Skoðun að utan
Erfitt getur reynst að skoða þak en þó er gott að kynna sér ástand og viðhaldssögu.
Skoðun á ytra byrði, eru sprungur í steypu eða skemmdir í klæðningu.
Skoðun á gluggum að utan.
Skoðun á útidyrahurð og anddyri hússins.
Almennt innan íbúðar
Skoða inn í skápa sem fylgja með eigninni.
Kveikja og slökkva ljós, eru rofar í lagi.
Skoða hvort leynist mygla eða sprungur í hornum.
Athuga hvort ofnar hitni.
Er vatn í krönum fljótt að hitna og kólna.
Er gólfefni í lagi, sumt gólfefni er hægt að slípa og lakka.
Eru gólflistar í lagi.
Virkar dyrasími.
Virkar dyrabjalla.
Virka rafmagnstenglar (innstungur).
Eru hurðar í lagi.
Eru gluggar í lagi.
Er móða á rúðum.
Virka opnanleg fög á gluggum.
Eru opnanleg fög þétt.
Er málningin á gluggum heil (ef timburgluggar).
Athuga hvort reykskynjarar séu virkir.
Er slökkvitæki til staðar.
Skoða rafmagnsmæli og töflu.
Hvar er vatnsinntak íbúðarinnar.
Baðherbergi
Er vatnskraftur mikill þegar skrúfað er frá krönum og sturtu.
Er sírennsli í klósetti þegar sturtað er niður.
Er loftræsting eða gluggi á baðherbergi.
Er hol hljóð undir flísum.
Er öryggisniðurfall á baðherbergi.
Eru flísar heilar.
Þvottahús
Er loftræsting eða gluggi í þvottahúsi.
Er öryggisniðurfall í þvottahúsi.
Er hol hljóð undir flísum.
Eru flísar heilar.
Eldhús
Er leki inni í vaskaskáp.
Virka eldhústæki.
Virkar eldhúsvifta.
Er eldhúsinnrétting heil.
Húsfélag
Athuga yfirlýsingu húsfélag.
Athuga stöðu á framkvæmdasjóði.
Eru einhver gallamál í gangi.
Er húsfélagið á leið í framkvæmdir.
Hversu gamlar eru frárennslislagnir (skólp- og drenlagnir).
Hvað hefur húsfélagið gert á undanförnum árum.
Hversu mikill hússjóður fylgir eigninni.
Er hitakostnaður húsfélagsins eðlilegur.
Spurningar til seljenda
Hefur verið leki í íbúðinni.
Hefur verið myglaí íbúðinni.
Hafið þið orðið vör við rakamyndun.
Hvernig eru samskipti ykkar við nágranna.
Að lokum hvetjum við kaupendur fasteigna til að vanda til verka þegar íbúðir eru skoðaðar. Fasteignakaup eru meðal stærstu fjárhagslegra ákvarðana sem einstaklingar ráðast í. Því borgar sig að gefa sér góðan tíma til að skoða eignina, spyrja réttu spurninganna og afla sem mestrar vitneskju um öll smáatriði áður en ákvörðun er tekin.
