Hagkerfi

Verðbólga

Verðbólga er þegar almennt verðlag hækkar með tímanum. Þegar þetta gerist þá kaupir hver króna minna en áður og kaupmáttur peninga minnkar.

15. september 2026

Verðbólga er þegar almennt verðlag hækkar með tímanum. Þá þarf fleiri krónur til að kaupa sömu vörur og þjónustu og áður. Sem dæmi kostaði 1L af mjólk um 105 kr. árið 2010 en kostar nú um 230 kr. Hækkandi verðlag þýðir því að hver króna kaupir minna en áður og kaupmáttur peninga minnkar.

Þegar verðlag lækkar er talað um verðhjöðnun. Verðhjöðnun getur átt sér stað í einstaka mánuðum en það gerist sjaldan að verðlag lækki samfellt yfir lengra tímabil.


Hvernig er verðbólga mæld?

Á Íslandi er verðbólga mæld sem breyting á vísitölu neysluverðs. Vísitalan mælir hvernig verð á vöru og þjónustu sem almenningur kaupir breytist yfir tíma og er reiknuð mánaðarlega af Hagstofu Íslands. Þegar verð á vörum og þjónustu hækkar þá hækkar vísitalan. Þegar talað er um að verðbólga sé 5% er yfirleitt átt við að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 5% á síðustu tólf mánuðum.

Vísitala neysluverðs samanstendur af þrettán undirflokkum sem allir hafa sitt vægi.
Vísitala neysluverðs samanstendur af þrettán undirflokkum sem allir hafa sitt vægi.

Hvað veldur verðbólgu?

Það geta verið margar ástæður fyrir því að verð á vörum og þjónustu hækkar. Eitt dæmi er þegar fólk hefur meiri pening milli handanna. Það veldur því að eftirspurn eykst, fólk kaupir meira og fyrirtæki geta hækkað verð.

Verð getur einnig hækkað þegar kostnaður fyrirtækja eykst eða erfiðara verður að framleiða eða flytja inn vörur. Laun, hráefni, húsnæði, orka og flutningar eru dæmi um kostnað sem getur hækkað. Náttúruhamfarir, slæmt veður, stríð eða truflanir á flutningum geta einnig haft slæm áhrif. Fyrirtæki geta þá þurft að hækka verð til að mæta auknum kostnaði eða vegna þess að minna er til af ákveðinni vöru.

Verðbólguvæntingar skipta einnig máli. Ef fólk og fyrirtæki búast við áframhaldandi verðhækkunum geta þau tekið mið af því þegar laun og verð eru ákveðin. Launþegar geta farið fram á hærri laun til að mæta væntum verðhækkunum og fyrirtæki síðan hækkað verð til að mæta hærri launakostnaði. Hærri laun geta því leitt til hærra verðs, sem getur aftur aukið launakröfur. Þannig getur myndast hringrás sem gerir verðbólgu þráláta.

Hringrás sem getur myndast vegna samspils hækkandi launa og aukinnar verðbólgu.
Hringrás sem getur myndast vegna samspils hækkandi launa og aukinnar verðbólgu.

Hvað gerir Seðlabankinn?

Eitt af meginverkefnum Seðlabanka Íslands er að stuðla að stöðugu verðlagi. Markmið bankans er að verðbólga á tólf mánaða tímabili sé sem næst 2,5%.

Seðlabankinn hefur fyrst og fremst áhrif á verðbólgu með stýrivöxtum. Þegar verðbólga er of mikil getur hann hækkað vexti. Þá verður dýrara að taka lán og hagstæðara að spara, sem getur dregið úr neyslu og þar með verðbólgu. Á móti getur Seðlabankinn lækkað vexti. Þá verður ódýrara að taka lán og minni hvati til að spara, sem getur aukið neyslu.

Hér má sjá þróun frá árinu 2002 á tólf mánaða breytingu vísitölu neysluverðs ásamt verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
Hér má sjá þróun frá árinu 2002 á tólf mánaða breytingu vísitölu neysluverðs ásamt verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.

Er verðbólga slæm?

Mikil eða óstöðug verðbólga getur minnkað kaupmátt, flækt langtímaáætlanir og haft áhrif á kostnað lána. Þetta á sérstaklega við um verðtryggð lán, þar sem verðbólga hefur bein áhrif á lánsupphæð og greiðslur. Verðtryggð lán eru tengd vísitölu neysluverðs og þegar verðlag hækkar þá hækkar höfuðstóll þeirra í takt.

Lítil og stöðug verðbólga er hins vegar eðlilegur hluti hagkerfisins og hefur Seðlabanki Íslands það að markmiði að halda verðbólgu sem næst 2,5%.